Nína Magnúsdóttir
Íkonur: Nína Magnúsdóttir sýnir á Mokka

Heiti sýningarinnar er ætlað að leiða hugann að þeirri tvíhyggju sem setur mark sitt svo sterkt á okkar vestrænu siðmenningu. Sú heimspekikenning að tilveran skiptist í tvo óskylda og ósamrýmanlega frumþætti eins og efni og anda, hið góða og hið illa, hefur verið grunntónninn í boðskap kirkjunnar í aldaraðir. Þessi arfleifð kristinnar trúar litar enn í dag alla okkar menningu og hugsunarhátt og er þá nútímakonan ekki undanskilin. Það er hún sem Nína gerir hér að yrkisefni sínu í röð ljósmynda sem unnar eru með aðstoð tölvutækninnar.

Íkonar eru einu nafni nefndar þær helgimyndir sem sýna Krist, engla og dýrlinga og að sjálfsögðu Maríu mey með Jesúbarnið. Ljósmyndir Nínu byggja á þessari óralöngu hefð og minna okkur á hvernig konan rataði inn í vestræna listasögu, fyrst sem tálkvendið Eva og hin flekklausa heilaga guðsmóðir, og síðar sem nektarfyrirsætan og holdtekja dýrslegra hvata. Kirkjan lét setja epli í hönd Evu og gerði hana ábyrga fyrir brottrekstrinum úr aldingarðinum Paradís og þar með allri mannlegri eymd og þjáningu. Á endurreisnartímanum gerðu listamenn sér lítið fyrir og máluðu gjarnan spegil í stað eplisins, sem tákn fyrir hégómagirnd konunnar. Þannig var konan fordæmd um leið og hún var fengin til að taka þátt í meðhöndluninni á sjálfri sér sem sýn, karlmönnum til ánægju og yndisauka. Þaðan lá leiðin til ljósmyndafyrirsætunnar og klámiðnaðar tuttugustu aldarinnar sem þarf hvorki á epli né spegli að halda til að réttlæta tilvist sína.

Það er ekki úr vegi að rifja upp söguna um eplið eins og segir frá í Biblíunni, þar sem Nína gerir sér talsverðan mat úr því: ‘En er konan sá, að tréð var gott að eta af, fagurt á að líta og girnilegt til fróðleiks, þá tók hún af ávexti þess og át, og hún gaf einnig manni sínum, sem með henni var, og hann át. Þá lukust upp augu þeirra beggja, og þau urðu þess vör, að þau voru nakin, og þau festu saman fíkjuviðarblöð og gjörðu sér mittisskýlur ... Drottinn kallaði á manninn og sagði við hann: ‘Hvar ertu?’ Hann svaraði: ‘Ég heyrði til þín í aldingarðinum og varð hræddur, af því ég er nakinn, og ég faldi mig ...’ En við konuna sagði hann: ‘Mikla mun ég gera þjáningu þína, er þú verður barnshafandi. Með þraut skalt þú börn fæða, og þó hafa löngun til manns þíns, en hann skal drottna yfir þér.’

Nína fékk tólf íslenskar konur til að sitja fyrir með nakin afkvæmi sín, allt stráka, líkt og María mey forðum daga. Hún fékk þeim girnilegt, vaxhúðað epli í hönd og lét þeim sjálfum eftir að ákveða hvernig þær vildu handfjatla það. Bakgrunnur verkanna myndar eins konar sagnfræðilegt veggfóður með fallískum skýjakljúfum á borð við Empire State, Eiffelturninn, Skakka turninn í Pisa og Notre Dame. ‘Þessar konur hafa eiginlega villst inn í verkin mín,’ segir Nína sem útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1995. ‘En því er náttúrlega ekki að leyna að þær María og Eva hafa haft ómæld áhrif allar á okkur Embludæturnar.’Áhorfendur geta gætt sér á rauðum eplum sem raðað hefur verið á hillu við endavegg salarins svo þeir geti betur innbyrt táknmerkingu þessa örlagaríka ávaxtar.

Madonna and Child

Nína Magnúsdóttir mounts an exhibition at Mokka with a clear message and a critical reference to the portrayal of women in Christian art.

artists
critics
gallery
central
office
icelandic
e-mail