Gunnar Kristinsson
Lögreglan: Ein, zwei, Polizei

Á föstudag opnar ljósmyndasýning á verkum Gunnars Kristinssonar á Mokka þar sem sýningarhald hefur legið niðri undanfarið hálft ár rétt til að minna borgarbúa á að menninginn er ekki sjálfsagður hlutur. Nú hefst það aftur með formlegum hætti að nýju í samvinnu við menningarsamsteypuna art.is og verður sem fyrr lögð megináhersla á að sýna unga og framsækna listamenn, en þess má geta að Mokka heldur upp á fertugs afmæli sitt í maí næstkomandi.

Gunnar Kristinsson hefur búið og starfað að list sinni í Berlín síðastliðin sjö ár og fylgst grannt með yfirgangi nýnasista og hinni miklu hörku sem lögreglan þar í landi beitir. Hugmyndin að ljósmyndaröðinni ‘Lögreglan’, sem til sýnis er á Mokka, mun hafa kviknað hjá Gunnari þegar hann var að horfa á maraþonhlaup. Skammt undan stóð laganna vörður sem átti að halda leiðinni opinni fyrir hlauparana, en hann var svo upptekinn að sjálfum sér og því að vera í búningi að hann virtist gleyma að sinna störfum sínum. ‘Einhvern veginn fæddist síðan þessi lögreglumaður sem veit ekki alveg hvernig hann á að haga sér sem lögreglumaður,’ segir Gunnar. ‘Hann er mjög stoltur af búningnum og þeirri ímynd sem hann skapar honum, en á í hinu mesta balsi með sjálfan sig.’

Menn kynnu að ætla þarna hefði kolómögulegur lögreglumaður verið á ferðinni, en Gunnar er hins vegar á því að hann sé dæmigerður fyrir lögregluna sem blundar í okkur öllum. Við látum okkur lögin aðeins varða þegar okkur hentar og oftast þegar það skiptir litlu eða engu máli líkt og lögreglumaður sem eyðir deginum í að fægja bílinn sinn eða bjarga ketti ofan úr tré. ‘Ef við sjáum karlmann leggja hendur konu lítum við á það sem þeirra mál er komi okkur ekki við’, segir Gunnar. ‘Ef við sjáum aftur á móti einhvern reykja þar sem það er bannað kemur lögreglan strax upp í okkur og við krefjumst réttar okkar. Þá finnst okkur við hafa unnið sigur og beitt lögunum til góðs og segjum stolt frá afrekinu.’

Samkvæmt Gunnari mælum við hugrekki út frá þeim ofbeldismyndum sem við höfum séð og þykjumst viss um að þegar hetjan bjargar einhverju saklausu fórnarlambinu þá hefðum við farið eins að. Lögreglumaðurinn á myndunum hefur hins vegar litlar áhyggjur af því að bjarga heiminum. Honum finnst eins og okkur hinum nóg að lifa af daginn án þess að verða fyrir of miklu hnjaski eða drepast úr leiðindum.

Sýning Gunnars Kristinssonar á Mokka stendur til 5. mars, en kaffihúsið er opið alla virka daga og laugardaga frá kl. 10-23:30 og sunnudaga frá kl. 2-23:30.

 


 

Curriculum Vitae

Gunnar Kristinsson

Born March 14, 1967 in Akureyri, Northern Iceland

Gunnar studied at the Industrial School of Akureyri, the Saudárkrókur’s College and at a popular high-school in Denmark. He studied photography at Hochschule für Grafik und Buchkunst in Leipzig between 1992-95. For the past three years Gunnar has lived and worked in Berlin, devoting considerable time to the elderly and mentally retarded.

Exhibitions:

1998 Mokka, Reykjavik

1997 Mannequins: Gallery List, Hannover

1997 Das Traumpaar: Kunstraum Wohnraum, Hannover

1996 A-4: group exhibition in Norway

1994 The Art House Thing, Akureyri

1994 Open Days in Leipzig, group exhibition

Bréf til Bobby Damm
Hjálmar Sveinsson, heimspekingur og útvarpsmaður ritar bréf til kunningja síns sem hann nefnir Bobby Damm ...
artists
critics
gallery
central
office
icelandic
e-mail