Guðjón Bjarnason
Listamaðurinn Guðjón Bjarnason

Eftir Thor Vilhjálmsson

Þessi hugumstóri listamaður eirir ekki kyrrstöðu. Hann ryðst um fast gegn stöðnun í hverri mynd. Fjölmenntaður og víðsýnn fæst hann við margháttað efni sem hann tekur þeim tökum sem henta eðli þess, en hvaðeina reynist við kynni tengjast rímböndum frjórrar spyrjandi hugsunar, þannig að hvert tímabil í list hans stendur heillegt með marghljómandi víddum sem kveðast á.

Hann glímir við rými. Rými í rými í rými. A rose is a rose is a rose, sagði Gertrude Stein. Tákn er tákn er tákn, segir Guðjón og táknin vaxa furðusterk í aganum ströngum og dylja sitt innra rými nema hugurinn gangi á og spyrji. Og á samskeytum eða liðamótum opnast kvikur leikur með urmul af dansandi táknvættum sem ryðjast til máls, í nýrri óþreyju gegn meiningu sem er orðin tóm og áþján og hindra kynni nýjan vöxt, ef hún nær að verjast véfengingu. Þannig yrkir Guðjón tákn sem verður svo tákn um sig sjálft, eyðir því þá og býr þar með til nýtt tákn, nýja merkingu.

Leitinni linnir hvergi, lífið krefst sívirkrar vitundar, þess að hugsa og skynja af alefli. Skapa og eyða jafnharðan svo nýtt lifni samkvæmt nýjum háttum sem hafa rutt frá fyrri áður en næðu að frjósa, og kviksetja líf.

Því fyrra er rutt burt, hrakið undan og búið í haginn svo ný draumaveröld megi gerja fram, eða eðlileg vitund fríast frá stöðluðu merkingarformi sem er hætt að meina í fastheldni sinni og verður farg, áþján, svo kerfisbundið að kalla mætti lifandi dauða, leyfði annað hitt.

Eyðing brýn, til að komast nær uppruna sköpunar, og þannig eru tákn byggð til að gera aðför að fyrri táknum, markvisst til að ljósta fram merkingu. Án afláts.


Thor Vilhjálmsson hefur gefið út fjölda bóka og hlotið Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir ritstörf sín.


Texti © Thor Vilhjálmsson

Myndverk © Guðjón Bjarnason

Innsetning í Hafnarborg, 1993
Þessi hugumstóri listamaður eirir ekki kyrrstöðu. Hann ryðst um fast gegn stöðnun í hverri mynd.
Því fyrra er rutt burt, hrakið undan og búið í haginn svo ný draumaveröld megi gerja fram
listamenn
gagnrýni
gallerí
miðstöð
stofa
enska
e-mail